Hringekjan - Hring eftir hring kynnir í samstarfi við KRHA, sjálfbær listaverk þar sem ónýtanlegum fatnaði sem fellur til í Hringekjunni er umbreytt í einstakt klæðilegt listaverk 'e. Wearable Art.'
Á bakvið KRHA stendir hönnuðinn Kristrún Rut Hassing Antonsdóttur en Kristrún leggur áherslu á sjálfbærni, endurvinnslu og skapandi litasamsetningar. Hver flík er handgerð, endurnýjuð og dregur innblástur úr bretta/bóhem tísku.
Fáðu þér eitthvað einstakt og styddu við sjálfbæra tísku.
Hjá okkur fara fötin
hring eftir hring
Jón Sæmundur hefur tekið að sér að myndskreyta leðurjakka sem hafa safnast hjá okkur og er hver og einn jakki einstakur.
seamSTRESS er slow fashion verkefnið hennar Isabelle Bailey, saumakonu. Hún einblínir á að hanna og sauma fatnað úr notaðri vefnaðarvöru sem myndi annars lenda í gám.
Sindri Snær Rögnvaldsson er ungur fatahönnuður sem brennur fyrir sjálfbærni. Hann umbreytir gömlum flíkum í einstakar flíkur með mikinn persónuleika. Verk hans, innblásin af 70s/80s pönk senunni, endurspegla trú hans á endurnýtingu og listræna nálgun á úrgang.