Hringekjan í samstarfi við seamStress (Isabelle Bailey) hefur samstarfsverkefnið Hringekjan Endurskapað, þar sem við munum í samstarfi við hönnuði kappkosta að fullnýta þann textíl sem fellur til hjá okkur í söluferlinu og í samstarfi við hönnuði framleiða vandaðar umhverfisvænar vörur.
Fyrr á árinu bættust í teymið okkar þær Arna Lísa og Isabelle Bailey. Arna er menntaður fatahönnuður frá Parsons The new School of Design í New York, en hún hefur sérhæft sig í að hanna með uppvinnslu efna í huga og mun hún halda utan um verkefnið Hringekjan Endurskapað.
Fyrsti hönnuðurinn - Isabelle Bailey
Isabelle Bailey er fyrsti hönnuður innan þessa nýja verkefnis "Hringekjan Endurskapað" - en hún er starfsmaður Hringekjunnar og hefur lært fatasaum. Hún einblínir á að hanna og sauma fatnað úr notaðri vefnaðarvöru sem myndi annars lenda í gám; svo sem gömul föt eða efnisleifar af ýmsu tagi.
Samstarfið byggir á að taka fatnaðinn og aukahlutina sem safnast saman í versluninni og búa til klæðileg listaverk úr þeim (e. Wearable Art).
Spornum enn frekar við textílsóun
Hennar þátttaka er fyrsta skref í þessu verkefni sem okkur hlakkar mikið til að halda áfram með - en markmiðið er að þetta verði að föstum lið í starfsemi okkar á komandi tímum. Með þessu skrefi náum við að teygja okkur enn betur inn í hringrásina og sporna enn frekar gegn textíl sóun og jafnframt stuðlað að verðmætasköpun úr annars ónýttum hráefnum með hæfileikaríkum íslenskum hönnuðum.
Björt framtíð fatahönnunar með umhverfð að leiðarljósi
Fyrsta skrefið í bjartri framtíð samstarfs á milli Hringekjunnar og upprennandi hönnuða sem vilja hanna með umhverfið að leiðarljósi.