Björk Eiðsdóttir tók viðtal við okkur fyrir hönd Fréttablaðsins
Hringekjan
Hjónin Davíð Örn Jóhannsson og Jana Maren Óskarsdóttir fundu það síðasta sumar að vöntun væri á verslun af þessu tagi í miðborginni og opnuðu dyr Hringekjunnar í Þórunnartúni í janúar síðastliðnum.
„Við hönnuðum umhverfi verslunarinnar með það að leiðarljósi að flæðið í versluninni og fatnaður myndi njóta sín sem best. Einnig var okkur hugleikið að auka við þjónustu við viðskiptavini og spara þeim sporin og því bjóðum við upp á lager rými þar sem við geymum vörur fyrir viðskiptavini okkar og fyllum á þeirra bás eftir þörfum,“ segir Davíð.
Hvernig er framkvæmd markaðarins?
Einstaklingar geta bókað hjá okkur pláss í 7 til 28 daga og selt hjá okkur sinn fatnað og fylgihluti. Við útvegum merkispjöld með áföstum verðmiðum ásamt þjófavörnum sem viðskiptavinir sjá um að koma fyrir á sínum vörum en þeir geta komið með allt að 60 flíkur í einu.
Hvernig vörur eru til sölu?
Fatnaður og fylgihlutir fyrir fullorðna. Vöruúrvalið er hins vegar mjög fjölbreytt, allt frá buxum, kjólum, kápum og skóm yfir í íþróttafatnað og merkjavöru fyrir alla aldurshópa og öll kyn, hvort sem það eru nýlegar vörur eða „vintage.“
„Fyrstu þrjá mánuðina erum við búin að kom 5090 hlutum í nýjar hendur“
„Það varð algjör sprenging hjá okkur í febrúar þar sem fjöldi seldra hluta jókst um 50 prósent milli mánaða þrátt fyrir að janúar hefði farið fram úr okkar björtustu vonum. Fyrstu þrjá mánuðina erum við búin að kom 5090 hlutum í nýjar hendur,“ segir Davíð.
Greinina má lesa í heild sinni hér: https://www.frettabladid.is/frettir/loppumarkadir-allir-graeda/